mánudagur, nóvember 21, 2011

Langþráð sumarfrí og kvöldmatur fyrir einn

Nú er rétt rúm vika þar til ég fer í sumarfrí. Já ég sleppti að mestu fríinu í sumar og á þess vegna inni nokkuð marga daga sem ég get tekið núna á næstunni. Þar sem sumarið er náttúrlega löngu liðið í Belgíu neyðist ég víst til að skreppa til Ástralíu til að ná smá brúnku á kroppinn. Á flug í næstu viku til Sydney þar sem sumarið er rétt að byrja og þar vona ég að ungfrúin muni bíða mín eftir þriggja mánaða svaðilför um suðaustur Asíu. Ég hlakka nú eiginlega meira til að hitta hana heldur en að komast á framandi slóðir.  Þrír mánuðir í sitthvorri heimsálfunni svolítið mikið, en hefur þó verið furðu fljótt að líða. Planið síðan að halda áfram til Nýja Sjálands, eyða jólunum í Fiji, og áramótunum á vesturströnd Bandaríkjanna, áður en flogið verður aftur til Brussel í byjun janúar. Ég mun því fara hringinn í kringum hnöttinn á aðeins rétt rúmum mánuði. 
----------------------------------------
Það vill nú oft fara svo að eldamennskan verður ekki upp á marga fiskana þegar maður býr einn. Einhvernvegin ekki jafn skemmtilegt að elda fyrir einn, eins og fyrir tvo eða fleiri. Ég braut hinsvegar aðeins upp normið í kvöld og eldaði mér einn af mínum uppáhalds réttum eins og sjá má á myndinni fyrir neðan. Spaghetti Bolognese, sem reyndar var alltaf kallað speghettí og hakk í sveitinni í gamla daga, og jafnvel á góðum degi hagettí og spakk þegar Stóru Reykja heimasætan var í essinu sínu. Í útfærslu minni smjörsteiki ég fyrst kvart skorna sveppi sem ég krydda með góðum slurk af hvítlauki. Gerir gæfumuninn að mínu mati. Mikilvægt líka að velja góða tómatsósu. Ef ég á parmesan þá er gott að strá því yfir líka. Best er svo að hafa skammtinn stórann því þetta er eiginlega best á öðrum og þriðja degi upphittað á pönnu, ekki í örbylgju sem gerir allan mat ókræsilegan.


Spaghettí og hakk ala HLK

0 Álit:

Sendu inn athugasemd