miðvikudagur, október 19, 2011

Á meðal sænskra

Skrapp til Stokkhólms um helgina. Alltaf jafn gaman að koma þangað. Var hálfpartinn búinn að gleyma hversu sláandi munur er á borginni og Brussel. Allt svo þægilegt, hreint og fallegt. Andstæð lýsingarorð eiga því miður ákaflega vel við um Brussel. Gæddi mér á kaffi og kanelbull-um (gómsætir kanelsnúðar) í ótæpilegu mæli enda kannski það í sænskri matarmenningu sem ég sakna helst. Aðaltilgangur ferðarinnar var að hitta tvo félaga úr LLM náminu. Annar vinnur núna hjá sænska samkeppniseftirlitinu en hinn á lögmannsstofu í Kiev í Úkraínu. Náð líka að hitta nokkra Íslendinga sem eru búsettir í borginni. Annars var helginni eytt í rólegheit. Kíktum aðeins á hina margrómuðu klúbba við Stureplan sem bjóða gjarnan upp á framúrskarandi úrval af ljóshærðum ungmeyjum og mjóslegnum sænskum töffurum (sem Gnarr túlkaði frábærleg sbr. youtube). Röltum líka talsvert um borgina í björtu en köldu haustveðri. Hugsaði með mér eftir ferðina að ég væri alveg til í að prófa að búa aftur í Stokkhólmi. Væri fínt ef hægt væri að sameina prófessional tækifærin sem bjóðast í Brussel og framúrskarandi samfélagsgerðina og umhverfið í Stokkhólmi.

Andreas og Sasha
Andreas, Sasha og Haukur
Sergelstorg í Stokkhólmi

0 Álit:

Sendu inn athugasemd