Rakst á tvær athyglisverðar en um leið ótrúlegar frásagnir á netinu í dag. Annars vegar um eflingu gjaldeyrishaftanna á þann hátt að menn geta átt von á líkamsleit í Leifstöð af smygluðum Evrum. Hins vegar frétt um konu sem verið var að svipta fjárræði vegna þess að henni hafði tekist að koma á annari milljón úr landi (og þá væntanlega í gegnum gjaldeyrishöftin) inn á reikning Nígeríu svindlara. Gat ekki betur séð en að seinni frásögnin réttlæti aðgerðina sem lýst er í hinni fyrri. Þ.e. að nauðsynlegt sé að binda í eitt skipti fyrir öll enda á gjafmildi og bruðl auðtrúa Íslendinga.
Að öllu gamni slepptu þá gæti þetta verið angi af því sem á eftir að koma Íslandi inn í ESB á endanum. Þegar kjörin verða nægilega kröpp og höftin nógu stíf munu hugsjónirnar dofna og stálkalt hagsmunamatið taka að stýra ákvörðunum meir en nú er. Flestar ákvarðanir, stórar sem smáar, taka sig sjálfar á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga og/eða aðstæðna. Þannig held ég að ESB ákvörðunin verði tekin á hvorn veginn sem verður. Á einhverjum tímapunkti mun önnur leiðin verða óverjandi og hin augljós. Hvort Evran sé Frelsarinn skal ég ekki segja. Hún í það minnsta ber sig mannalega í hvert skipti sem ég skokka framhjá henni í hádeginu fyrir framan Evrópuþingið eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan.

0 Álit:
Sendu inn athugasemd