mánudagur, febrúar 14, 2011

Tækifæri Steingríms í Icesave

Sé að hafnar eru undirskriftasafnanir vegna Icesave. Ein mælir á móti samþykkt og vill fá málinu vísað í þjóðaratkvæði, en hin er samþykk og treystir ekki fólki til að vera sama sinnis. Ef ég væri Steingrímur mundi ég taka af skarið og hafa frumkvæði að því að halda þjóðaratkvæði um Icesave og endurtaka stjórnlagaþingskosninguna í leiðinni. Mætti framkvæma í vor eða sumar. Ef málið er svona gott verður varla vandi að sannfæra kjósendur um að samþykkja. Stjórnmálamenn á flótta undan almenningsálitinu eru oftast á hálum ís og því ætti í þessu máli að nýta ágæt samningsdrög til að koma fram af sjálfstrausti gagnvart þjóðinni. Með því að splæsa stjórnlagaþinginu saman við Icesave kosningu mætti virkja allt pólitíska spektrúmið í að smala á kjörstað. Íhaldið mætir til að fella Icesave í von um að grafa undan ríkisstjórninni, og frjálslyndir munu mæta til að stuðla að stjórnlagabreytingum í von um að grafa undan valdakerfi íhaldsins.

0 Álit:

Sendu inn athugasemd