Við fórum í gærkvöldi á frumsýningu Svarta svansins í einu af bíóum borgarinnar. Kvikmyndir virðast vera heldur seinna í sýningu í Brussel en í Reykjavík af einhverjum ástæðum. Mér fannst myndin mjög góð en kannski ekki alveg besta myndin sem ég hef séð á árinu. Af þeim sem eru tilnefndar til Óskarsins í kvöld mundi ég velja Social Network.
Natalie Portman var óhugnanlega sannfærandi í hlutverki ballerínunnar. Maður eiginlega upplifði á sjálfum sér í bíósætinu allar angistar tilfinningarnar sem ballerínan gekk í gegnum. Fangaði vel brenglunina í kringum og hjá þeim sem vilja skilyrðislaust komast á toppinn. Maníska mamman sem lifir í gegnum afrek dótturinnar, paranojan gagnvart mögulegum keppinautum, og misnotkun valdmannsins á áhrifum sínum, eru þemu sem öllum er komið vel til skila. Besta atriðið fannst mér þegar hún bókstaflega verður Svarti svanurinn í lokin. Framkallaði smá gæsahúð.
Annars var helgin tiltölulega róleg. Vorum með gest og röltum því aðeins um bæinn. Meðal annars niður á Grand Place þar sem myndin fyrir neðan var tekin.
![]() |
| Svarti sauðurinn og Svarti svanurinn á Grand Place |

0 Álit:
Sendu inn athugasemd