fimmtudagur, febrúar 24, 2011

Inside Job og Exit through the Gift Shop

Hef á síðustu dögum séð tvær áhugaverðar heimildamyndir sem ég mæli með:

Inside Job fjallar um efnahagskreppuna og ástæður, afleiðingar og viðbrögð við henni. Sjónum er beint að Wall Street, en stuttur kafli í upphafi fjallar um Ísland með viðtölum við nokkra Íslendinga. Sagan er í sjálfu sér kunnugleg. Reagan hóf að losa um hömlur á starfsemi fjármálafyrirtækja sem rekja mátti til Kreppunar miklu á fjórða áratugnum. Bush-Clinton-Bush héldu áfram á sömu braut leiddir áfram af lobbýistum fjármálageirans sem hafa mikil ítök í bandarísku stjórnkerfi. Alan Greenspan og Larry Summers eru gagnrýndir harðlega fyrir að hafa staðið í vegi fyrir setningu reglna um afleiðuviðskipti í kringum árið 2000 sem gerði kleift að veðja á nánast hvað sem er í formi viðskiptasamninga. Síðar áttu einmitt slíkar afleiður með undirmáls húsnæðislán eftir að valda domino-falli á nokkrum risum á Wall Street á meðan aðrir græddu stórkostlega á því að veðja á að akkúrat það mundi gerast. 

Komið var einnig inn á áhugaverðan punkt varðandi ábyrgð akademíunar á því sem varð. Margir helstu hagfræði prófessorar frægu bandarísku skólanna (Harvard, Columbia o.s.frv.) stunda meðfram fræðunum ráðgjafastörf og sitja í stjórnum risanna á Wall Street. Tekið var sérstakt dæmi um Frederic Mishkin og Richard Portes, sem nefndur er frægasti hagfræðingur Breta, og skýrslunar sem þeir skrifuðu um Ísland. Í viðtölum í myndinni eru skólamennirnir afhjúpaðir sem skilningslausir með öllu á að hagsmunir geti rekist á þegar þeir koma fram sem fræðimenn um fjármálakerfið en eru í raun á launaskrá helstu hagsmunaaðila viðfangsins. 

Exit through the Gift Shop er af allt öðrum toga. Fjallar um þróun götulistar úr því að vera neðanjarðarhreyfing sem stunduð er í skjóli nætur á strætum stórborga í trássi við lög og reglu, yfir í að verða stofustáss hjá menningarelítunni. Sagan af þessu er sögðu í gegnum ólánslegan Frakka sem fyrir slysni festir sögu götulistarinnar á filmu á 10 ára tímabili. Virkilega áhugaverð mynd fyrir alla sem hafa áhuga á list og/eða listasögu. Klassískt dæmi um hvernig utangarðsmenning slær í gegn og elur af sér hetjur. Í þessu tilfelli er hetjan hin goðsagnakenndi Banksy. Hálft í hvoru er þetta líka ádeila á snobbið í kringum listina og þunnu línuna á milli innihaldsríkrar listar og sell-out listar.



Veggjakrot eftir Banksy sem núna er búið að mála yfir

2 Álit:

  1. Við erum með þessa mynd uppi á heimilinu í London :)

    ReplyEyða
  2. Já er það!

    Hún er líka ansi skemmtileg

    ReplyEyða