miðvikudagur, febrúar 23, 2011

Hæstiréttur verður Milliréttur

Heyrði í Speglinum áðan að helstu félög íslenskra lögfræðinga kalla eftir millidómstigi. Jón Steinar talaði á svipuðum nótum í viðtali í Sjónvarpinu um daginn. Rökin eru mikið álag og skortur á viðunandi áfrýjunarmöguleika á sönnunarfærslu.

Borðleggjandi er að Hæstiréttur ætti að vera hið nýja millidómstig og að skipaður yrði fámennari dómur (kannski 3-5 dómarar) fyrir ofan hann sem veldi sér sjálfur mikilvæg mál til meðferðar eða væri aðeins skylt að taka fyrir mál sem væru sérstaks eðlis. Hann mætti skíra Ögmundardóm eða jafnvel Ögréttu eftir núverandi ráðherra dómsmála. Þó mætti vel hugsa sér að endurskíra alla dómstóla með nýrri skipan og koma þannig á Forrétti, Millirétti og Aðalrétti. Mannréttindadómstólinn í Strasborg mætti svo manna í millum óformlega kalla Eftirrétt.

Með þessu væri hægt að ráða æðstu dómara sem rétt eru vaxnir til að stýra því verki sem framundan er í dómskerfinu við að taka til eftir hrunið og koma á réttlæti í samfélaginu. Eins og ég sé þetta eru flestir núverandi hæstaréttardómara síðustu leyfar stjórnkerfis sem brást fullkomlega í aðdraganda og eftirleik hrunsins. Er einhver ástæða til að ætla að í Hæstarétti leynist einstök undartekning frá fullkomnu vanhæfi  annara þátta ríkisvaldsins? Dómar síðustu missera gefa ekki sérstaka vísbendingu um að svo sé og því ætti að nota tækifærið að brjóta Hæstarétti af stalli eins og önnur nátttröll sem steingerðust í hruninu.

Ágætt væri að fá nýja kynslóð dómara í hinn nýja dómstól. Lögfræðinga sem eru veðraðir af ferskum vindum þess sem nýjast er í lögfræðinni á heimsvísu. Ekki rykfallna menn á sextugsaldri sem hvorki hafa lesið né skrifað nokkuð gáfulegt svo áratugum skiptir. Einfalt væri að gera það að hæfisskilyrði að menn hefðu aflað sér doktorsgráðu í fræðunum til að teljast tækir í dóminn. Bara slíkt skilyrði gerði næstum alla núverandi dómara Hæstaréttar óhæfa og mundi því rýma vel fyrir nýrri kynslóð hæfileikafólks í nýjan dóm Ögmundar.

1 Álit:

  1. gott að vita að bakverkurinn hefur ekki drepið hjá þér húmorinn ;)

    ReplyEyða