Glápti á Gnarr rétt í þessu. Afar óvenjulegt viðtal við afar óvenjulegan stjórnmálamann. Skemmdi reyndar svolítið fyrir að spyrillinn virtist hafa andlega dýpt á við menntaskólakrakka og þráspurði því spurninga eins og; afhverju þarf að hækka skatta eftir eitt versta efnahagshrun hagsögunnar?; og afhverju þarf að segja upp fólki í Orkuveitunni sem er tæknilega gjaldþrota? Jón tókst á við þessa heimsku á yfirvegaðann hátt þrátt fyrir að ég væri farinn að bölva spyrlinum í hljóði á tölvuskjánum með aulahroll langt niður á bak og hefði sjálfsagt afgreitt hana á svipaðann hátt og finnski bókmenntaverðlaunahafinn fór með stallsystur hennar í vikunni.
Jón lallaði í gegnum þetta líkt þolinmóður kennari sem fær endalausar heimskulegar spurningar frá nemanda sínum sem telur sig vita allt en veit þó ekkert. Jón nálgaðist spurningar og vandamál sem afstæð út frá því sem við væri miðað og í hvaða samhengi á meðan spyrillinn taldi að ef lofað væri X á punkti A þá yrði það að standa óhaggað á punkti B þrátt fyrir gjörbreyttar aðstæður. Til að bæta gráu ofan á svart þurfti að margtyggja ofan í hana margvíslegar svona augljósar hugsanavillur og hún skildi ekki ágætar myndlíkingar Jóns á því hvernig hann sæi ástandið fyrir sér. Þetta var svolítið eins og að sjá heimspeking spurðan að því í fúlustu alvöru hvernig úrslitaleikurinn í bikarkeppni karla fór árið 2005 líkt og það skipti einhverju stór máli.
Í hnotskurn fannst mér spyrillinn í viðtalinu hlutgervast í því sem Jón Gnarr er að glíma við þessa dagana; meðalgreint fólk sem hefur ekki andlega burði til að skilja að til séu þeir sem finni hugmyndir og lausnir handan þess sem fyrir öðrum eru bara hvítir tómlegir veggir. Viðbrögðin eru enda fyrirsjánleg hjá þeim sem ekki skilja; enda rottar meðalmennskan sig ævinlega saman í að rífa niður þann gjörvilega.
Góður pistill hjá þér. Nákvæmlega það sama og ég var að hugsa á meðan ég horfði á viðtalið. Jón komst frá þessu á hreint ágætan hátt og eins og honum einum er lagið.
ReplyEyðaJón Gnarr og hugmyndafræði bestflokksins er líklega það best sem hefur sést hefur í íslenskum stjórnmálum í fjölda ára.
Nýjar leiðir, jafnvel áður ókannaðar leiðir er lausnins á þeim vanda sem við glímum við í dag.
kv
sgó
Já ég horfði á þáttinn í endurtekningunni og er sammála þér. Annaðhvort var spyrillinn svona vanhæfur eða hún er bara þæg og spurði fyrirfram ákveðinna spurninga sem henni voru fengnar af yfirmanni, og áttu að klekkja á Jóni. Það var unun að því hve létt hann tæklaði hana án þess að taka á hana "finnsku" afgreiðsluna.
ReplyEyða